Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Bensín og aðrir orkugjafar

Þetta er með ólíkindum hvað það er gott að selja íslendingum orku. Það er hægt að hækka og hækka, en allir virðast láta það yfir sig ganga. Ýmsar hugmyndir hafa skotið upp kollinum í gegnum tíðina í þessum efnum en aldrei næst samstaða um neinar aðgerðir gegn þessum orkusölum. Maður hefur heyrt oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að réttast væri að leggja bílunum og hætta að kaupa af þessum sölum. Hver man ekki eftir Alfreð og hitaveitunni hérna um árið. Hækkaði vegna góðs veðurs og lítillar kyndingar það sumarið. Er ekki bara málið að ef allir legðu bílum sínum mundi verðið hækka vegna lítillar sölu. Mundu ekki okurgjöld bílastæða borgarinnar hækka líka til samræmis við það? Ef maður fer orðið á bensínstöð þá er yfirleitt allt annað til sölu þar heldur en tengist bílum. Finnst matvörukaupmönnum ekkert athugavert við það að það skuli vera seld matvæli á bensínstöðvum. Ríkistjórnin gerir ekkert í þessum efnum fyrir okkur sem nú einu sinni kusum þá á þing til þess að gæta hagsmuna okkar og fara með stjórn landsinns í okkar umboði, til þess að sporna við þessu. Kannski er málið bara orðið það að það eru auð og eignamenn sem stjórna orðið hér öllu í krafti auðæfa sinna og við hin svíðum fyrir það.


mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband